Norræna tungumála- og menningaráætlun Nordplus 2008-2011

Næsti umsóknarfrestur fyrir tungumálaverkefni er 15. október 2010.

Norræna tungumála- og menningaráætlun Nordplus (Nordplus Nordiske Sprog og Kulturprogram)
hefur það að markmiði að bæta málskilning á Norðurlöndum jafnfram því að auka áhuga, þekkingu og skilning á norrænni menningu, málum og lífsháttum.

Norræna ráðherranefndin hefur ákveðið að Tungumála- og menningaráætlun Nordplus verði mótuð og komið á fót utan rammaáætlunar Nordplus sem sérstakur vettvangur helgaður norrænum tungumálum.

Tungumála- og menningaráætlun Nordplus hefur alls til umráða 6.396.960 MDKK danskar krónur til starfsemi sinnar árið 2010. Þar af eru 2.000.000 MDKK sérstaklega ætlaður námsferðum nemenda og starfsfólks grunn- og framhaldsskóla.

Danmörk, Finnland, Ísland, Noregur og Svíþjóð standa að Tungumála- og menningaráætlun Nordplus 2008-2011. Einnig eiga sjálfsstjórnarsvæðin Færeyjar, Grænland og Álandseyjar ásamt samíska málsvæðinu aðild að verkefninu.

Aukaumsóknarfrestur 15. október 2010 fyrir tungumálaverkefni -- sjá auglýsingu:

  2010_OKTOBER_Auglysing_Nordplus_Nordiske_Sprog_og_Kulturprogrammet.pdf (.pdf 51 K) Sækja skjal

 

Markmið og stuðningur

Meginmarkmið Norrænu tungumála- og menningaráætlunar Nordplus á árunum 2008-2011 eru:

  • Að styrkja málskilning og þá sérstaklega skilning á grannmálunum (dönsku, norsku og sænsku).
  • Að auka áhuga, þekkingu og skilning á norrænni menningu, málum og lífsháttum.


Stuðningur Tungumála- og menningaráætlunar Nordplus beinist að eftirfarandi sviðum:

Námsferðir:

  • nemenda- og starfsmannaskipti á grunn- og framhaldsskólastigi.

Verkefni:

  • fræðsla fyrir almenning.
  • máltækni
  • námskeiðahald
  • orðabóka- og íðorðavinna
  • rannsóknir
  • ráðstefnur
  • útgáfur
  • þróun og útgáfa námsgagna og námsefnis

Samstarfsnet:

  • stofnun samstarfsneta á sviði norrænna mála

Hvernig er áætlunin samansett?

Tungumála- og menningaráætlun Nordplus er tvískipt.

  1. Annars vegar er hluti hennar helgaður norrænum málum. Veittir eru styrkir til verkefna, samstarfsneta og námskeiðahalds.
  2. Hins vegar er hluti ætlaður námsferðum á sviði grunn- og framhaldsskóla. Styrkir verða veittir til nemenda- og starfsmannaskipta með það að markmiði að styrkja málskilning, málkunnáttu og menningarvitund nemenda/uppeldisstarfsfólks. Þessi hluti áætlunarinnar er fyrst og fremst ætlaður bekkjum á grunn- og framhaldsskólastigi en einnig kennurum og öðrum sem starfa að uppeldismálum innan grunn- og framhaldsskóla. Nánari upplýsingar um námsferðir í norrænu tungumálaáætluninni er að finna hér.

Áherslur 2010:

  • Verkefni sem efla málskilning barna og ungmenna (á dönsku, norsku, sænsku).
  • Verkefni sem innihalda leiðbeiningar um hvernig best sé að kenna dönsku, norsku og sænsku í Finnlandi, Færeyjum, Grænlandi, Íslandi og samísku svæðunum.
  • Verkefni sem innleiða verkefnið ’sprogpiloterne’ í kennslu ungmenna (14-19 ára).
  • Verkefni sem styrkja stöðu málskilnings í kennaramenntun og styrkja samvinnu um stefnumótun á sviði norræna mála í kennaramenntun á Norðurlöndunum.
  • Verkefni sem innihalda hugleiðingar um val háskóla á tungumálum sem kennt er á.
  • Samstarfs- og þróunarverkefni á sviði tungutækni
  • Verkefni sem stuðla að því að markmið norrænu tungumálaherferðarinnar (Nordisk
    Sprogkampagne) náist

Upplýsingar:

Annað

Handbók um Nordplus (á skandinavísku) (.pdf, 552 kb)

Leiðbeiningar um gerð lokaskýrslu er að finna í þessari notendahandbók: ARS User Guide (.pdf, 11 mb)

Gagnagrunnur til þess að finna samstarfsaðila í Nordplus

Hvernig og hvenær er sótt um?

Aukaumsóknarfrestur fyrir tungumálaverkefni er 15. október 2010. Umsóknarfrestur í öllum liðum Nordplus (Junior, Háskólastig, Voksen, Horisontal og Nordiske Sprog- og Kulturprogram) er 1. mars 2011.

Öllum umsóknum verður að skila rafrænt í gegnum umsóknarkerfið ARS á slóðinni: http://ars.norden.org. Leiðbeiningar um ARS á ensku er að finna í eftirfarandi PDF-skjölum:

ARS Brukervejledning (.pdf, 12 mb)

ARS User Guide (.pdf, 11 mb)

Upplýsingar

Nánari upplýsingar fást hjá Alþjóðaskrifstofu háskólastigsins, verkefnisstjórar fyrir Tungumála- og menningaráætlun Nordplus eru:

Guðmundur I. Markússon, sími 525 5854, gim(hjá)hi.is
Karítas Kvaran, sími 525 4304, karitask(hjá)hi.is

Upplýsingar á dönsku er að finna á aðalsíða Nordplus: www.nordplusonline.org/sca/sprog_kultur