Styrkir til samvinnu sem tengir saman aðrar undiráætlanir Nordplus og / eða tengir saman ólíka menntageira. Nordplus Horizontal er opið öllum þeim sem vinna að þróun og nýsköpun menntamála, hvort sem það eru opinberir aðilar, félagasamtök, skólar eða einkageirinn. Gerð er krafa um samstarf á milli lágmarks 3 þátttökulanda innan Norðurlanda og Eystrarsaltslanda.
Nordplus Horisontal á að stuðla að samvinnu á milli sviða menntageirans, óháð kennslugreinum, sem fjallar t.d. um samvinnu og tengsl milli grunn- og framhaldsskóla, fullorðinsfræðslu, háskólamenntunar, rannsókna, fyrirtækja og félagasamtaka.
Megináherslur Nordplus Horizontal:
Nánar um Horizontal á nordplusonline.org/eng/horizontal
Umsóknarfrestur í öllum liðum Nordplus (Junior, Háskólastig, Voksen, Horisontal og Nordiske Sprog- og Kulturprogram) er 1. mars 2012. Öllum umsóknum verður að skila rafrænt í gegnum umsóknarkerfið ARS á slóðinni: http://ars.norden.org. Leiðbeiningar um ARS: ARS User Guide (.pdf. 11 mb)
Tengiliðir fyrir Nordplus Horizontal hjá Alþjóðaskrifstofu háskólastigsins eru:
Sigrún Ólafsdóttir, 525 5855, sigrunol(hjá)hi.is og Óskar E. Óskarsson (vara), 525 5852, oeo(hjá)hi.is.
Aðalsíða Nordplus er: www.nordplusonline.org